Hörður Guðbrandsson nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur

Hörður Guðbrandsson hefur tekið við formennsku Verkalýðsfélags Grindavíkur, en hann tekur við embættinu af Magnúsi Má Jakobssyni sem gegnt hefur formennsku í félaginu frá árinu 2012. Hörður er búfræðingur að mennt og hefur starfað við ýmsa verkamannavinnu í gegnum tíðina, m.a. sem bílstjóri, verkstjóri og sjómaður. Hörður var í bæjarstjórn Grindavíkur í 10 ár og forseti bæjarstjórnar megnið af þeim tíma. Þá hefur Hörður setið í stjórn Kölku og SSS (Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum) auk þess að hafa sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið og fleiri félög. Einnig var Hörður varaformaður Verkalýðsfélags Grindavíkur um tíma. Starfsgreinasambandið býður Hörð velkominn í formannahóp sambandsins og þakkar í leiðinni Magnúsi fyrir farsælt samstarf í gegnum tíðina. [caption id="attachment_269113" align="alignleft" width="300"] Hörður og Magnús við formannaskiptin[/caption]              
  1. 12/19/2025 1:19:04 PM Launahækkun 1. janúar
  2. 12/19/2025 10:22:00 AM Jólakveðja 2025
  3. 12/3/2025 2:23:43 PM Starfsemi erlendra vörsluaðila
  4. 12/3/2025 11:44:05 AM Nýr stofnanasamningur undirritaður við Land og Skóg