24. febrúar 2016
Átak gegn ólöglegri sjálfboðastarfsemi
Starfsgreinasamband Íslands er í átaki gegn ólöglegri sjálfboðastarfsemi og hefur í vikunni sent meira en 50 bréf til atvinnurekenda sem auglýsa eftir erlendum sjálfboðaliðum á til þess gerðum heimasíðum. Aðildarfélög Starfsgreinasambandsins um allt land hafa síðan fylgt því eftir með því að heimsækja viðkomandi atvinnurekanda eða hafa það í hyggju á næstunni. Starfsgreinasambandið hefur einbeitt…
22. febrúar 2016
Formannafundur SGS - tveir formenn kvaddir
Síðastliðinn föstudag (19. febrúar) hélt Starfsgreinasambandið formannafund í höfuðstöðvum sambandsins í Reykjavík. Til fundarins voru boðaðir formenn allra aðildarfélaga sambandsins, 19 talsins. Á dagskrá fundarins var m.a. erindi frá Vinnueftirlitinu þar sem Kristinn Tómasson læknir Vinnueftirlitsins fjallaði um ofbeldi, áreiti og einelti og úrræði við þeim og innlegg frá NPA-miðstöðinni þar se…
19. febrúar 2016
SGS stendur við bakið á starfsfólki álversins í Straumsvík
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, sem haldinn var fyrr í dag (19. febrúar) lýsir yfir þungum áhyggjum af kjaradeilu starfsfólks í álverinu í Straumsvík við óbilgjarna viðsemjendur. Kröfur þeirra stéttarfélaga sem hlut eiga að máli eru sanngjarnar en þeim er mætt af ábyrgðaleysi og hroka. Deilan er orðin langvarandi og alvarleg og yfirlýsingar hins alþjóðlega móðurfyrirtækis um launafrys…
19. febrúar 2016
Upprætum brotastarfsemi á vinnumarkaði
Alþýðusamband Íslands hefur í samstarfi við aðildarsamtök sín hleypt af stokkunum verkefninu Einn réttur, ekkert svindl! Verkefninu er beint gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi en síðustu mánuði hafa stéttarfélögin orðið vör við vaxandi brotastarfsemi á vinnumarkaði. Sérstaklega í byggingargeiranum og ferðaþjónustunni sem eru helstu vaxtargreinar í þeirri uppsveiflu sem nú r…
16. febrúar 2016
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning hófst í morgun
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins hófst kl. 8:00 í morgun og stendur hún til kl. 12 á hádegi 24. febrúar næstkomandi. Í gær, 15. febrúar, sendi ASÍ út kynningargögn um samninginn og atkvæðagreiðsluna í pósti og ættu þau að hafa borist öllum sem eru á kjörskrá á tímabilinu 16. - 19. febrúar. Í gögnunum er að finna lykilorð sem viðkomandi notar til að greiða atkvæði. Þ…