3. október 2025
10. þing SGS
10. þing Starfsgreinasambands Íslands fer fram dagana 8.-10. október næstkomandi í Hofi, Akureyri. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 135 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum sambandsins.
3. október 2025
Gjáin stækkar á vinnumarkaði - Ný skýrsla Vörðu
Árleg könnun sem Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins leggur fyrir launafólk í aðildarfélögum ASÍ og BSRB, sýnir fram á breiða gjá sem einkennir stöðu launafólks í landinu. Fram kemur í skýrslunni að sjö af hverjum tíu ná endum saman og sex af hverjum tíu gætu mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Þá búi hinn hluti launafólks hins vegar við allt önnur kjör og er afkoma lágtekjufólks almennt mjög erfið og umtalsverður fjöldi launafólks á hinum almenna vinnumarkaði býr við raunverulegan skort.
18. september 2025
Nýr verkefnastjóri SGS
Arinbjörn Rögnvaldsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands og hefur þegar hafið störf. Arinbjörn mun annast ráðgjöf og þjónustu við aðildarfélög SGS á sviði kjara-, vinnumarkaðs- og starfsmenntamála og sinna margvíslegum verkefnum fyrir sambandið.
9. september 2025
Ályktun formannafundar SGS
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands fordæmir harðlega ákvörðun stjórnvalda um að afnema framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða frá og með næstu áramótum. Með þessari ákvörðun er brotið gegn samkomulagi sem gert var við verkalýðshreyfinguna árið 2005 og átti að tryggja að réttindaávinnsla væri jöfn milli sjóða.
21. ágúst 2025
SGS óskar eftir verkefnastjóra
Erum við að leita að þér? Starfsgreinasamband Íslands leitar að skipulögðum, drífandi og jákvæðum verkefnastjóra í 100% framtíðarstarf á skrifstofu sambandsins. Um er að ræða lifandi og fjölbreytt starf þar sem margþætt menntun og reynsla nýtist vel.