10. október 2018
Starfsgreinasambandið birtir kröfur sínar
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefur birt kröfugerð sína vegna komandi kjarasamninga. Kröfugerðirnar snúa annars vegar að stjórnvöldum og hins vegar að atvinnurekendum. Kröfurnar mótuðust á fundum í verkalýðsfélögum og á vinnustöðum um land allt og með hliðsjón af niðurstöðu viðhorfskannana. Þær urðu þannig til í víðtæku, lýðræðislegu ferli í verkalýðshreyfingunni þar sem öllum f…!--more-->
10. október 2018
Stöðvum brotastarfsemi á vinnumarkaði
Hér að neðan er yfirlýsing verkalýðshreyfingarinnar um þá mannfyrirlitningu og brotastarfsemi sem viðgengst á vinnumarkaði gagnvart erlendu launafólki og opinberuð var almenningi í Kveik í síðustu viku.
Í fréttaskýringarþættinum Kveik á RÚV 2. október 2018 var varpað ljósi á brotastarfsemi sem viðgengst á vinnumarkaði gagnvart erlendu launafólki. Þar voru sýnd dæmi um alvarlega meinsemd í íslensk…!--more-->
6. október 2018
Öll aðildarfélögin veita umboð
Öll 19 aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hafa veitt sambandinu samningsumboð og munu félögin því koma sameinuð að gerð kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, en núgildandi samningar renna út um áramótin. Um er að ræða sögulegan áfanga því þetta er í fyrsta skipti í sögu sambandsins sem öll aðildarfélögin framselja samningsumboðin til SGS vegna kjarasamninga á almennum markaði.
Í gær lauk góð…
3. október 2018
Í kjölfar Kveiks
Starfsgreinasambandið hefur árum saman barist gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði og gegn þrælahaldi hvers konar. Í kjölfar Kveiks, fréttaskýringaþáttarins sem var sýndur á þriðjudagskvöld hafa fjölmargir hringt og velt fyrir sér hvað hægt sé að gera. Hér fyrir neðan eru hlekkir á tillögur Starfsgreinasambandsins, ályktanir og aðgerðir til að stemma stigu við brotastarfsemi á vinnumarkaði.
Félagsl…!--more-->
2. október 2018
Stöndum með félögum okkar í Finnlandi!
Norræn samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu (NU-HRCT) krefjast þess að finnska ríkisstjórnin láti af áformum um lagabreytingar sem ætlað er að veikja rétt launafólks í uppsögnum. Framkvæmdastjórn samtakanna lýsir yfir fullum stuðningi við félaga í Finnlandi í þeim verkfallsaðgerðum sem fyrirhugaðar eru. Markmið aðgerðanna er að þrýsta á ríkis…